Það er nokkuð ljóst að bakkar eru algjörlega inn núna, enda svo ægilega gaman að safna hinu og þessu saman á bakka og gera þannig eina heild úr mörgum stökum hlutum. Reglan er engin og aðferðirnar svo ótalmargar en kertin eru þó algjörlega ómissandi á bakkann núna þegar veturinn hefur bankað uppá.
Hjá mér eru bakkar hér og þar um húsið svo það er gaman að fá hugmyndir til að betrumbæta og laga bakkana enda eru þeir í endalausri endurröðun. Fabulous er með samkepni um fallegasta kertabakkann og þar pikkaði ég út þá sem mér þótti fallegastir og vil deila með ykkur sem insperation.
La bella vita - det gode liv |
mammas-hus |
mammas-hus |
þessir bakkar og enn fleyri til tóku þátt í samkepni um fallegasta kertabakkann hjá ; maiaslilleverden.blogspot.com/
Mér finnst sérlega gaman að sjá gluggakarminn/bakkann á síðunni sem þú vísar á neðst. Ég á orðið nokkra karma sem ég hef haldið til haga en hef bara notað til útstillinga á handverkssýningum.
ReplyDeletejá fallegir karmar eiga það svo sannarlega skilið að vera til sýnis og ég hef séð margar útgáfur af því hvernig hægt er að nota þá, kanski það sé bara efni í eitt blogg ;)
ReplyDelete