Við vorum að skoða kertabakka af netinu fyrr í vikunni og það varð til þess að ég reyndi enn einu sinni að vingast almennilega við myndavelina og myndaði þá bakka sem núna eru hér og þar um húsið....
Á eldhúsborðinu er þessi praktíski bakki:
með blómi (algjört möst) kerti í lítilli skál, fallegt eldspítna box frá greengate, vatnsflaska og glös, skál með suðusúkkulaði og mjólkurkanna.
Allt algjörar nauðsynjar á eldhúsborðið ekki satt?
og svo var þetta fallega vetrargrenitré (kallast ekki jólatré fyrr en í næsta mánuði) að koma frá Noregi og var bara akkurat það sem vantaði uppá að ég yrði sátt við bakkann
Þessi bakki er nú bara orðinn fastur á stofuborðinu og með þessum steinkertastjökum,
Núna eru þessar bækur þar líka með pínu skreyttum kertum.
bækurnar keypti ég á nokkrar krónur og voru algjörlega valdar eftir lit og útliti, svo gasalega smart.
Svo er það saumavelarborðið:
Það hefur pínu verið til vandræða, ég hef ekki haft hugmynd um hvað ég á að hafa á því og í þokkabót stendur það alveg við stigana á milli hæða svo það er tilvalið að leggja þar hitt og þetta sem á að fara í næstu ferð upp...hm og er þar svo í marga daga
svo ég prufaði að setja þar stórann bakka með td fermingarmynd af mömmu og brúðarmynd af foreldrum hennar og eldgamalt fjölskyldualbúm frá föður afa mínum.
Það á mikið eftir að færa og bæta þarna en svona er hann núna.
Svo er þessi litli kertabakki á litlum skáp útí horni með ilmkerti og kertakrukkum.
Jæja þannig eru nú bakkarnir hjá mér í dag, en eins og ég hef sagt áður þá er reglan við svona bakka engin og um að gera að prufa sig áfram og breyta til.
ohh ég er líka svona bakka- og reyndar skála kerling ;) þetta er mjög kósí hjá þér.
ReplyDelete