Ég var búin að lofa myndum úr skírninni hjá litlu og fallegu systurdóttir minn
og eithvað grunaði mig að myndirnar yrðu bæði bleikar og fallegar.
...og margar!
hún glæsilega móðir mín saumaði kjólinn sem hún er í þegar sonur minn var skírður fyrir 21 ári síðan
og nokkuð mörg börn hafa verið í honum síðan þá.
stóra systirin heldur á henni undir skírn.
skírnartertan kom frá Ragga bakara og var jafngóð og hún var falleg
en svo skulum við bara dást að Rós dagsins;
jedúddamía er hún ekki falleg!!
Stóri bróðir með Rósina sína..
en hann sagði um leið og hann sá hana fyrst að hún heytir Rósa:)
þessi litli gestur lagði sig í veislunni, svo fallegur!
og auðvitað var heimilið skreytt með bleikum rósum....
með kveðju frá stoltri frænku,
sem er full aðdáunar á þessu nýja lífi
Meiri dúllan þetta barn og flottar myndir hjá þér :-)
ReplyDeletekv. Fríða