Muniði þegar við kíktum á Blóm í bæ í Hveragerði í Júni?
Þegar feðgarnir gleymdu sér aðeins á bókamarkaði,
ákvað ég að athuga hvað væri þar sem Eden var...
og viti menn þarna standa rústirnar enn, myndskreyttar og stórbrotnar og mynda ótrúlega kontrast við fallega nátturuni í baksýn og gróðurhúsin sem minna á það sem áður var.
Þarna er enn hægt að sjá hvernig allt var, að minnsta kosti varð það allt ljóslifandi fyrir mér og ég gekk um versluninna, gat næstum snert á lopapeysunum, rölti inn í gróðurúsið og mundi eftir öllum plöntunum og stóra bananatrénu. Veitingastaðurinn, ísinn, allt lifnaði það við þegar ég gekk um hellurnar og flísalögð gólfin.
Aparnir taka á móti okkur við innganginn,
Magnað samspil nátturu og myndskreyttra rústana var heillandi myndefni
og hér koma mín sjónarhorn frá Eden í Hveragerði sumarið 2015:
Vonandi höfðuð þið gaman að þessum pínu öðruvísi pósti og sjáið líka fegurðina í þessum gömlu rústum sem voanndi fá að vera þarna um ókomna tíð.
Edit: Listamaðurinn Örvar Árdal á heiðurinn af þessum stórkostlegu listaverkum í Eden.
Eigið góðann dag,
Kær kveðja
Stína Sæm
I love seeing this. Thank you for sharing.
ReplyDeleteListamaðurinn sem á heiðurinn af þessum myndskreytingum heitir Örvar Árdal.
ReplyDelete