Í dag er föstudagur og þar sem ég er mikil kjólakona er ég búin að ákveðja að ég ætla að hafa föstudaga, kjóladaga, langar sem sagt til þess að vera alltaf í kjól á föstudögum..... og aðra daga ef mig langar til.
En ég væri líka alveg til í að eiga fleiri kjóla, og hér koma nokkrar vel valdar myndir af fallegum kjólum sem ég væri til í að eiga.....
Anna Sui spring 2011 |
Þessi finst mér æðislegur og virkar svo dásamlega þægilegur,
langar líka í skóna og peysuna í öðrum lít,
Sumarlegur og léttur kjóll með fullt af glingri.... svo mikið ég.
trendhunter.com |
þessi er algjör draumur, fallegur á litin, þunnur og þægilegur .. já takk
freepeople.com |
á svipaðan þessum en gæti alveg hugsað mér annann hvítann síðan sumarkjól
mode-coach.nl |
Eigum við eithvað að ræða þennann .... vá!!!
Næsta hekl verkefni? á einhver fallega dúka til að gefa mér í pils?
haha Þetta er snilldarhugmynd
fallegt pils sem ég gæti hugsað mér að eiga í mínum fataskáp,
Hér heima á Islandi er nauðsynlegt að eiga stóra peysu með svoan síðkjólum og pilsum,
þessi er alveg gordjöss
Gæti hugsað mér að eiga eina svoan og nota alla daga allann veturinn
Ó svo fallegt!
og alltaf eru aukahlutirnir aðalatriðið, elska svona skran og dót.
Ég er farin af stað í vinnu, í gömlum mikið notuðum antíbleikum pífukjól, brúnum sokkabuxum, þykkri afapeysu og með fullt af skarti, og ýminda mér að ég líti út eins og módelin hér að ofan ;)
Eigðið gleðilegann föstudag elskurnar,
kær kveðja
Stína Sæm
Post Comment
Post a Comment
vertu velkominn á litla bloggið mitt og endilega skildu eftir skilaboð, það er alltaf gaman að sjá hverjir koma hér inn og heyra hvað ykkur finst.
ps: ef þú ert ekki með account geturðu hakað við anonymous