Top Social

Svo Margt Fallegt á Bolludaginn

February 8, 2016
Ég ákvað að setja á nokkrar vatnsdeigsbollur í tilefni dagsins í dag
 og smellti af nokkrum myndum í leiðinni.














Og svo er bara að smakka svosem eins og eina eða tvær bollur og njóta þess í botn.

Svo Margt Fallegt á 



ps. Ef ykkur likar þessi póstur megið þið gjarnan klikka á fb takkann hér að neðan, svo ég sjái betur hvað ykkur líkar best.

Fjós og Hlaða Verður Að Flottu Heimili


















ps. Ef ykkur likar þessi póstur megið þið gjarnan klikka á fb takkann hér að neðan, svo ég sjái betur hvað ykkur líkar best.

Sætur Sunnudagur Heima Með Girnilega SúkkulaðiKöku

February 7, 2016

Dásamelgt að eiga sunnudag heima
 og njóta þess að borða góða sneið af  girnilegri súkkulaði köku.


og hvað passar svo betur með svona dísætri súkkulaði köku...
 en ísköld mjólk,


Vonandi eigið þið sætann og góðan sunnudag í dag,
með bestu kveðju
Stína Sæm

Meira frá Svo Margt Fallegt á




ps. Ef ykkur likar þessi póstur megið þið gjarnan klikka á fb takkann hér að neðan, svo ég sjái betur hvað ykkur líkar best.

laundromat cafe

February 5, 2016

Þegar ég fer í bæinn finst mér voða notalegt að detta inná The laundromat cafe,
staðurinn er skemmtilega retro og húsið sjálft eitt af þessum gömlu sjarmerandi húsum í miðbænum með hrikalega flottum loftlistum og deteilum sem njóta sín vel þarna, í smá kontrast við retro útlitið.
Ég hef bæði farið og fengið mér bara kaffi og köku eða samloku en svo er boðið uppá morgunmat og mér finst æðislegt að mæta á laundromat eftir gistinótt í bænum (gert það einu sinni) og fá mér vel útilátinn morgunmat/hádegismat.


Ég fann þessar myndir á netinu og þær sýna innréttingarnar mun betur en þær myndir sem ég hef tekið á staðnum svo við skulum bara láta myndiranr tala fyrir sig sjáflar

Góðan daginn

February 2, 2016

Dagurinn byrjar oftast hjá mér á því að setjast við tölvuna ... 
með kaffibollan að sjálfsögðu,
og ég sinni þvi sem þarf að sinna áður en ég fer út í skúr að mála,



þe. ef afþreying eins og facebook eða pinterest leiða mig ekki út af sporinu og ég týni áttum, GJÖRSAMELGA, 
 sem gerist allt of oft, hversu fókuseruð sem ég er þegar ég sest við tölvuna og ætla að sinna hinu og þessu sem þarf að gera, en ranka svo allt í einu við mér og er búin að vera allt annars staðar allann morguninn. 

En sem betur fer er það sem ég ætlaði mér að gera, oftast bara nákvæmlega það sem ég næ að týna mér í , ramba um á fasteignasölum og interior vefum í leit að fallegum innlitum fyrir bloggið, eða að kíkja á pinterest og velja ofurfallegar myndir í sætann sunnudag... 
hmm það er nú þar sem ég svo týnist smá stund... 
það er bara svoo margt fallegt að sjá í sætu deildinni þar.
Svo er það Milk paint deildin,....
 en jeminn hvað ég á auðvelt með að týnast í að skoða allt mögulegt efni um milk paint hjá  Miss mustard seed´s þegar ætlunin var bara að þýða eithvað serstakt efni þar og vinna í að setja upp netverslun hér á blogginu.
  


En fyrir B manneskju eins og mig er það alveg dásamlegt að geta byrjað daginn á náttfötunum við eldhúsborðið að vinna, sérstaklega meðan enn er dimmt úti þá veit ég ekkert betra en vakna snemma og þurfa ekki að fara út í kuldan, heldur kveikja á kertum og útvarpinu og sitja inni í hlíjuni.
Algjör draumur.

En nú er kominn timi til að ég fari að gera eithvað gagnlegt,
Vonandi hafði einhver gaman að þessu rausi í mér
 og kanski einhver kannist við svona athyglisbrest á netinu!

Hafið það sem allra best í dag
Kær kveðja 
Stína Sæm

Sjáið meira af Svo Margt Fallegt á 

ps. Ef ykkur likar þessi póstur megið þið gjarnan klikka á fb takkann hér að neðan, svo ég sjái betur hvað ykkur líkar best.

Morgunmatur og huggulegheit í innliti dagsins

February 1, 2016

Komið með mér í mánudagsheimsókn í  gamalt hús í Stokkholmi,

 Við byrjum á því að njóta dýrindis morgunverðar .....

 sem lagður er á gamalt eldhúsborð og okkur er boðið sæti í nokkrum ósamstæðum stólum sem gefa þessu fallega bjarta eldhúsi bæði karakter og lit.


Hér myndi ég segja að sé girnileg og falleg óreiða...


 Bara dásemlegt ekki satt?

Hér er hátt til lofst, fallegir loftlistar og veggir rýmana liggja í ýmsar gráður, sem er mun skemmtilegra en endalausir ferningar. Eins og svo oft er í gömlum fjölbýlishúsum í stokkholmi

Stofan skartar svo þessum gamla ofni sem einnig er svo einkennandi í  gömlum sænku húsum, 





Gömul trególf og fallegir listar heilla mig endalaust.

 Sjarmerandi!


Svefnherbergin eru lítil en óósvo notaleg og heillandi.




Morgunte með sítrónu og blaðið í rúmið... já takk.



Einfalt og fallegt.






 Takk fyrir að kíkja með mér í heimsókn á þessum mánudegi,
vonandi varst þú jafn hrifin af huggulegheitunum og ég.

Ég þakka líka  1ststreet.se fyrir að bjóða uppá þessa dásemd.
og fyrir þá sem hafa áhuga þá er íbúðin til sölu,
Væri nú ekki amalegt að eiga eitt svona afdrep til að skreppa í, 
enda Stokkholmur alveg einstakelga heillandi borg til að heimsækja.

Hafið það sem allra best í dag.
Kær kveðja 
Stína Sæm






ps. Ef ykkur likar þessi póstur megið þið gjarnan klikka á fb takkann hér að neðan, svo ég sjái betur hvað ykkur líkar best.

Nútímalegt skandinavískt heimili undir japönskum áhrifum

Blooc er Sænskt fyrirtæki sem hannar hús með mjög töff og flottri innanhúshönnun. Þau huga að nútímafjölskyldunni með stíl sem er spennandi en ekki of undarlegur, og þar hitta þau naglann á höfuðið.
Nýjasta verkefni þeirra kallast Patio og er í stíl Blooc´s með stórum iðnaðar stál-gluggum, áhugaverðum rýmum og einkennandi stigalausnum.  Það sem helst stendur út í þessum húsum er camína á miðri neðstu hæð, með stóru áberandi hitaröri sem liggur upp eftir öllu húsinu, umvafið bláum eða gulum stál stiganum. Eins og þið sjáið á myndunum þá eru áhrifin í hönnuninni á þessu heimili fengin frá Japan en þó er haldið í skandinavíska stílinn í efni og litum.
Fleiri heimili sjáið þið á síðu Blooc



Blooc is a Swedish company that designs houses with some really cool and stylish interiors. They are aiming at modern families and a style that is ”exciting but not strange”. I think they hit the spot.
Their latest project is called Patio and is carrying through Blooc’s usual style with large industrial steel windows, interesting angles and unusual stair solutions. What mostly stands out about these houses is the super tall exhaust pipe from the centrally placed stove, making a bold statement, and the petrol blue metal staircase is definitely not something you have seen before. As you can see, the styling here is quite inspired by Japan, but still keeping the overall Scandinavian impression through materials and colors.






Photos: Kristofer Johnsson Styling: Alexandra Ogonowski
Grein fengin frá/all credit .elledecoration.se/

ps. Ef ykkur likar þessi póstur megið þið gjarnan klikka á fb takkann hér að neðan, svo ég sjái betur hvað ykkur líkar best.

Auto Post Signature

Auto Post  Signature