Top Social

kósí og nutral jólastemning

December 14, 2015

Svo Margt Fallegt á

ps. Ef ykkur likar þessi póstur megið þið gjarnan klikka á fb takkann hér að neðan, svo ég sjái betur hvað ykkur líkar best.

Þriðja aðventukertið tendrað

December 13, 2015





Aðventuskreytingin er gerð úr því sem til var á heimilinu, nema grenið sem var keypt sérstaklega fyrir  verkið, stjörnurnar eru heimagerðar, gluggarnir eru úr gömlu húsi í reykjavík og óþjálfaði hundurinn ákvað sjálfur að setjast fyrir framan myndavelina og vera með í þessum bloggpósti.
Já ég ákvað að ég ætlaði ekki að kaupa neitt jólaskraut í ár og er næstum að takast það.
Nema greni og hýasintulaukar... að sjálfsögðu ;)

Hafið það sem allra best og munið að njóta aðventunar
Með kveðju
Stína Sæm


Svo Margt Fallegt á

ps. Ef ykkur likar þessi póstur megið þið gjarnan klikka á fb takkann hér að neðan, svo ég sjái betur hvað ykkur líkar best.

Frosen afmæliskaka á sætum sunnudegi

Íris Lind ömmustelpa átti 2ja ára afmæli 20. Nóvember og síðustu helgi var svo haldin afmælisveisla fyrir litla 2ja ára frosen stelpu og á borðinu var því frosen kaka að sjálfsögðu,

og mig langar að sýna ykkur eina fallega
 en svo ofureinfalda og auðvelda útgáfu af frosen köku.
Engin klístraður sykurpúðagjörningur í tilraun til að fá silkimjúkan og sléttann sykurmassa,
flórsykur um allt eldhús og amma sem er að fara á taugum á síðustu stundu...
nei aldeilis ekki. 



Kakan er bara pakka gulrótarkaka með bláu kremi á hliðunum og hvítu kremi smurt óreglulega ofaná.
Við fengum lánaðar fígúrur og litla afmælistelpan raðaði þeim á kökuna... með góðri hjálp
 og var alsæl með frosenkökuna sína
og allir sáttir



Já á þessari köku er bara vetrar partý og fjör
alvöru partýkaka.

Eigið sætann og góðann sunnudag.
Hafið það sem allra best í dag,
fjórða sunnudag í aðventu.
með kveðju 
Stína sæm

Svo Margt Fallegt á

ps. Ef ykkur likar þessi póstur megið þið gjarnan klikka á fb takkann hér að neðan, svo ég sjái betur hvað ykkur líkar best.

Aðventuskreytingin

December 12, 2015

Hér er aðventu skreytingin mín í ár,

frekar nátturuleg og  einföld greniskreyting, en þó ekki krans í þessa sinn,


Greni, könglar og lítill sætur fugl er nátturulegt og virkar alltaf,
bætum svo smá jólakúlum og skrauti við og ég er komin í jólaskapið.


Á sunnudaginn kveikjum við svo á þriðja kertinu.
Eigið góða helgi 
með kveðju
 Stína Sæm



ps. Ef ykkur likar þessi póstur megið þið gjarnan klikka á fb takkann hér að neðan, svo ég sjái betur hvað ykkur líkar best.

Skandinavískt nátturulegt jólainnlit

December 7, 2015

ps. Ef ykkur likar þessi póstur megið þið gjarnan klikka á fb takkann hér að neðan, svo ég sjái betur hvað ykkur líkar best.

Vinningshafinn i gjafaleik MixmixReykjavík og Svo margt fallegt er....

December 6, 2015



Nú er komið að því að draga úr gjafaleik Svo margt fallegt og Mixmix Reykjavík,



Ég notaði Random,org til að hjálpa mér að draga og það er athugasemd nr 7: Magga Kára

Sem vinnur mjúkt hamam handklæði og ilmandi sápu.


Ég væri til í svart með hvítum röndum og lavender sápu, eða epla eða vanillu....


Innilega til hamingju með vinningin Magga :)


Lina Ostling jól 2015

December 2, 2015
Síðasta sunnudag byrti ég fallega myndasyrpu af marengs af ýmsum gerðum eftir ljósmyndarann Linu Ostling og í dag ætla ég að deila með ykkur fallegum jólamyndum sem hún tók fyrir Expressen.

jól 2015 eftir Linu Ostling gjöriði svo vel!







.linaostling.se

Hafið það sem allra best í dag,
kær kveðja
Stína Sæm

ps. Ef ykkur likar þessi póstur megið þið gjarnan klikka á fb takkann hér að neðan, svo ég sjái betur hvað ykkur líkar best.

Auto Post Signature

Auto Post  Signature