Top Social

Showing posts with label aðventuskreyting. Show all posts
Showing posts with label aðventuskreyting. Show all posts

þriðji aðventusunnudagur

December 11, 2016
Ég byrjaði á þvi i myrkrinu í morgun, 
að kveikja á þriðja kertinu á aðventukransinum mínum,


 Ég geri yfirleitt einn aðventukrans.... þá meina ég krans.... í hring :) 
Svona nokkurnveginn hefðbundinn.
og í þetta sinn var hann ekki vafin heldur gerður úr lifandi grænum greinum en næstum ekkert af greni sem er stungið í blautann Oassis hring.

 og hann fer svonaglimrandi vel á borðstofuborðinu.

En svo er ég oftast með einhverja útgáfu af aðventu skreytingu í eldhúsinu, 

og í þetta sinn er það bakkinn sem ég málaði um daginn með könglum, gerfiepli, fjórum númeruðum kertum, þar af tvö í glerflöskum og furugreni í sultukrukku..... 
voðalega eldhúslegt og sætt.

Eigið góðann og notalegan sunnudag,
með kærri aðventukveðju;
Stína Sæm

ps. Ef ykkur likar þessi póstur megið þið gjarnan klikka á fb takkann hér að neðan, svo ég sjái betur hvað ykkur líkar best.

2. Sunnudagur í Aðventu

December 4, 2016






ps. Ef ykkur likar þessi póstur megið þið gjarnan klikka á fb takkann hér að neðan, svo ég sjái betur hvað ykkur líkar best.

Aðventuskreytingar frá femina

November 20, 2016














ps. Ef ykkur likar þessi póstur megið þið gjarnan klikka á fb takkann hér að neðan, svo ég sjái betur hvað ykkur líkar best.

Þriðja aðventukertið tendrað

December 13, 2015





Aðventuskreytingin er gerð úr því sem til var á heimilinu, nema grenið sem var keypt sérstaklega fyrir  verkið, stjörnurnar eru heimagerðar, gluggarnir eru úr gömlu húsi í reykjavík og óþjálfaði hundurinn ákvað sjálfur að setjast fyrir framan myndavelina og vera með í þessum bloggpósti.
Já ég ákvað að ég ætlaði ekki að kaupa neitt jólaskraut í ár og er næstum að takast það.
Nema greni og hýasintulaukar... að sjálfsögðu ;)

Hafið það sem allra best og munið að njóta aðventunar
Með kveðju
Stína Sæm


Svo Margt Fallegt á

ps. Ef ykkur likar þessi póstur megið þið gjarnan klikka á fb takkann hér að neðan, svo ég sjái betur hvað ykkur líkar best.

Aðventuskreytingin

December 12, 2015

Hér er aðventu skreytingin mín í ár,

frekar nátturuleg og  einföld greniskreyting, en þó ekki krans í þessa sinn,


Greni, könglar og lítill sætur fugl er nátturulegt og virkar alltaf,
bætum svo smá jólakúlum og skrauti við og ég er komin í jólaskapið.


Á sunnudaginn kveikjum við svo á þriðja kertinu.
Eigið góða helgi 
með kveðju
 Stína Sæm



ps. Ef ykkur likar þessi póstur megið þið gjarnan klikka á fb takkann hér að neðan, svo ég sjái betur hvað ykkur líkar best.

Aðvenntustemning

November 30, 2014
Hér er bara notaleg aðvenntustemning þó úti geysi mikið ofsaveður hér á Suðurnesjunum. 
Hef verið að jólastússast alla helgina og nýt þess núna að hlusta á jólatónlist við þægilega byrtuna af jólaseríum og kertum.




Notalegt í stofunni. 




Í eldhúsglugganum er nú kveikt á fyrsta aðventukertinu,
og ég óska ykkur notalegrar aðventu.

Aðventan finst mér alltaf dásamlegur tími og hér óma hátíðleg jólalög í botni á meðan húsfreyjan skreytir og stússast og syngur hástöfum.... 
Þakklát fyrir umburðarlinda sambýlismenn...... 
(sem eru eiginmaðurinn og sonurinn)

Með notalegri aðventukveðju
Stína Sæm




Auto Post Signature

Auto Post  Signature