Ég er í skemmtilegum blogghóp á facebook þar sem skapandi konur, sem blogga um allt mögulegt, tóku áskorun frá A4 um að koma, velja föndurefni í verslun þeirra og gera svo bloggpóst um verkefnið okkar.
(linkar neðst í póstinum)
Að sjálfsögðu tók ég þessari frábæru áskorun
og hér kemur loksins mitt framlag;
Ég valdi snæri og trékúlur í blómahengi sem ég ætla að sýna ykkur á morgun....
Svo valdi ég líka efni í heklaðar fígúrur sem ég hef átt uppskriftina af lengi en ekki fundið rétta garnið í hingað til.
Uppskriftin er frá Lilleliis og er af þremur krúttum: kanínu, bangsa og hundi.
Fyrir valinu varð Dale Freestyle, ullargarn sem má þvo í vel og fallegt efni og dásamlegar bleikar og grænar tölur frá Tilda.
Úrvalið af Tilda-efninu er alveg ómótstæðilegt og svo er hægt að fá borða í stíl líka. Alveg tilvalið til að skreyta svona krútt með. (þið getið skoðað úrvalið hér)
Ég valdi milda brúna og bláa tóna af efni frá Tilda í bangsann og hundinn. En ég á eithvað af efni og borðum, frá Tilda líka, hér heima, í bleikum og grænum litum sem ég ætlaði að nota í kanínuna. En svo þegar krúttkanínan var að mótast langði mig bara að nota efnið sem ég valdi í þessari ferð
(það sem ég átti fyrir var í allt of skærum litum fyrir þessa elsku)
þið vitið hvernig það er með svona lítil krútt, þegar þau koma loks í ljós sjáum við bara hvað fer þeim og hvað ekki.
Hér eru þau svo tilbúin, bangsinn og kanínan,
komin úti kofa í myndatöku, með nýja heklaða trefla og hún skreytt með fallegu bleiku tölunni.
Þau eru mun stærri en þau krútt sem ég hef hingað til gert og því þurfti ég grófara garn en ég nota venjulega í litlu krúttin og stærri nál. Dale garnið henntar ótrúlega vel og mér finst liturinn æði.
Hér koma svo fullt af myndum af parinu úti í kofa,
Hér sjáum við kanínuna á hlið,
og svo vangasvipinn á bangsanum.
Bangsinn fékk svo svona fallegann borða um hálsinn líka...
svona spariföt.
og svo heklaði ég svona fallega rós fyrir kanínuna..
hún þarf líka svona spari.
Krúttparið að aftan...
sjáið hvað þeim langar niður á gólf að leika.
Mér finst efnið með svona fínu munstri og mildum litum gera þessa bangsa svo margalt fallegri og hlakka til að ná mér í ný efni og gera fleyri svona.
Já, já er þetta ekki bara orðið gott?
sýnist þau vera orðin hálf feimin af þessu öllu saman.
og vonandi eruð þið ekki búin að missa alla athyglina því þetta er ekki alveg búið.
Kíkið yfir á A4 hannyrðir og föndur á facebook, skellið læki á síðuna þeirra og skoðið áskorunina hjá öllum hinum bloggurunum.
Það eru 10 aðrar frábærar og fjölbreyttar bloggsíður sem tóku þessari áskorun og þeirra verkefni hafa öll verið jafn frábær og fjölbreytt og þau eru mörg.
Já það hefur verið ótrúlega gaman að sjá hvað hefur komið út úr þessu hjá þeim öllum og það ættu allir að finna eithvað sniðugt við sitt hæfi.
Kær kveðja
Stína Sæm
Jessú minn hvað þetta er fallegt hjá þér Stína mín :)
ReplyDeleteEkkert smá krúttleg kríli hjá þér :)
ReplyDeleteJi hvað þau eru kjút :)
ReplyDeletejá Karen og eiginlega ættu öll lítil krútt að eiga svona :) Ég amk stóðst það ekki að gera þessi
DeleteÞessi eru nokkrum númerum of sæt! Mikð væri ég til í að kunna að hekla svona fínerí! - kannski einn daginn
ReplyDeleteTakk Þórlaug. þessi krútt eru alveg gild ástæða til að læra að hekla ;)
Delete