Aðfangadagur jóla,
Ég ætla að deila með ykkur nokkrum myndum af jólaborðinu okkar á aðfangadag...
á miðju borðinu fékk þessi blómstrandi orkidea að standa, en hún átti það svo sannarlega skilið fyrir að vera svona hátíðleg og blómstra í fyrsta sinn í langann tíma, núna í desember.
Mér finst alltaf alveg óskaplega gaman að leggja á borðið og reyni að hafa það ekki alltaf eins, þó þar séu að sjálfsögðu vissir hlutir á sínum stað, eins og sparidúkurinn og leirtauið.
en núna var það silfur, gler, könglar og plöntur sem príddi borðið og svo braut ég servietturnar í tvöfalda stjörnu, sem mér finst svo hátíðlegt og jólalegt brot og hef notað það amk einu sinni áður.
Allir pakkarnir komnir undir tréð og búið að kveikja á kertum og allt orðið svo hátíðlegt og fínt,
við höfum matin svo á eldhúsborðinu og náum okkur í á diskana,
svo að kertin og skreytingarnar fá að standa á borðinu allt borðhaldið.
Hátíðleg og notaleg stemning.
í ár var næstum allur barnahópurinn hjá okkur á aðfangadag, í fyrsta sinn í nokkuð mörg ár,
svo það voru alveg sérstaklega gleðileg jól hjá mér í ár.
Ríkidæmið mitt.
Amman með gullið sitt.
Litla ömmugullið átti kvöldið og alla athyglina skuldlaust.
Aðventan bruninn niður og við eigum gleðileg jól í faðmi fjölskyldunnar.
Með jólakveðju
Stína Sæm
Post Comment
Post a Comment
vertu velkominn á litla bloggið mitt og endilega skildu eftir skilaboð, það er alltaf gaman að sjá hverjir koma hér inn og heyra hvað ykkur finst.
ps: ef þú ert ekki með account geturðu hakað við anonymous