Mig langar að deila með ykkur þremur stórskemmtilegum póstum af blogginu Blúndur og bóm, sem Kikka á Akureyri heldur. Hún er greinilega með alveg hreint undursamlegt útsýni og þessar myndir eiga það allar sameiginlegt að vera teknar úti í garði hjá henni í fyrra sumar.
(ég set með linka á viðkomandi pósta svo þið getið séð hennar sögu og útskýringu á viðfansefninu)
Baðkarið finst mér algjör snilld og er einföld, ódýr og freistandi lausn fyrir pottalausann pallinn eða svalirnar... gæti svo bara borið það út á blett ef þannig liggur á manni... amk fyrir myndatöku
Svo skellti hún rúmi úti garð og fyllti það af púðum og teppum,
svo rómó og fallegt.
Svo var þessi bollapóstur hennar algjör snilld, en hún safnar bollum og hér stillti hún þeim upp á pínu óvenjulegann og þrusu skemmtilegann hátt.
Takk mín kæra fyrir þessa skemmtilegu samantekt af blogginu mínu :)
ReplyDeleteÞessar myndir eru nú svo dæmalaust frábærar, og svo ótrúlega gaman að sjá hvernig þú skapar sumarlega og notalega stemningu sem er bara erfitt að trúa að sé hér á Íslandinu okkar góða. og nú ætla ég ekkert að vera neinn eftirbátur í þeirri deildinni í sumar og lofa því að leggja mig framm um að skila mínu :)
Delete