Glerskápurinn í eldhúsinu er ekki eini skápurinn sem ég státa af hérna heima.
En í borðstofunni er annar, sem hefur ekkert verið mikið til að mynda hingað til, þó hann hafi nú lítillega ratað hér inn.. amk að hluta til.
En í honum hefur eiginlega bara verið hrúga af gleri(glös og skálar osvoleiðis) bláa mávastellið og dúkarnir mínir (misvel raðaðir í botnhillunni)
Eiginlega ekkert verið nógu vel sviðsett hingað til, svo mér finnist eithvað punnt af innihaldinu.
Eftir velhepnaða Ikea ferð um daginn varð pínu breyting í skápnum....
en ægilega fallegir hvítir diskar og skálar bættust við og gáfu innihaldinu pínu karakter.
Glerdótið var aðeins grisjað og sumt fór inní eldhús og annað fær bara að sitja í kassa í geymslunni, (hægt að grípa í það ef við viljum skála í freyðivíni eða ef óvenju margir þiggja hjá mér léttvín samtímis)
Ég hafði séð þessar skálar á bloggsíðu hjá einni í Ástralíu og fór sér ferð í Ikea til að ath hvort þær væru til hér líka, og mikið varð ég glöð við að finna þær í hillunum...
Svo fann ég diska líka í stíl, sem eru einmitt það sem ég hef leiðað að til að hafa sem svona betri diska og hlakka bara til að dekka upp með þeim og sýna ykkur þá í öllu sínu veldi á uppá búnu borðinu... ætla að næla mér í blóm og fíneri og svo fáum við sumarborð á næstunni með nýju diskunum.
Hvernig líst ykkur á það? Það verður jafnvel bara á pallinum
Æðislegar skálarnar og diskarnir. Hlakka til að sjá sumarborðið;) Big like á að myndavélin sé komin úr viðgerð.
ReplyDeleteKv.Hjördís
já Hjördís ég held hún verði nú mikið notuð næstu dagana, sérstaklega þegar ég er kominn í sumarfrí sem er bara eftir næstu viku. Þá get ég endalaust leikið mér að uppstillingum og búa til fallegt myndefni.
DeleteVirkilega fallegt og allt svo smekklegt hjá þér, hlakka til að sjá dekkað sumarborð hjá þér.
ReplyDeleteSumarkveðja., BirnaBjörk...;=)