Top Social

Jólainnlit í rómantískum frönskum stíl

December 22, 2013
Ég féll gjörsamlega kylliflöt fyrir þessu jólainnliti, Svei mér þá en þetta heimili er bara fullkomið í alla staði að mínu mati, gæti svo algjörlega hugsað mér að eiga þeta fallega heimili.

















Algjör draumur

Kveðja
Stína Sæm



Jólahús Reykjanesbæjar 2013

December 21, 2013
Það er upplifun útaffyrir sig að keyra um Reykjanesbæ á aðventunni og skoða skreytingar og jólaljós bæjarbúa, 

Á hverju ári veljum við jólahús Reykjanesbæjar og í ár var það litla ævintyralega jólahúsið á Túngötunni sem er heill ævintyraheimur sem gleður börnin á hverju ári og ég verð að segja að sjón er sögu ríkari og það er engu líkt að fara þarna framhjá og skoða húsið í raun.

 En kíkjum aðeins á þau hús sem komu til greyna í ár:

Bragavellir 17

Tysvellir 1

Óðinsvellir 7
Bragavellir 3

Borgarvegur 25

Miðgarður 2

Þverholt 18



Heiðarbraut 5c

Heiðarból 19

 Ef þið eigið leið um bæinn er tilvalið að taka rúnt og skoða jólahúsin í bænum, Þá eru vellirnir eiginlega bara eitt ljósaland sem dásamlegt er að keyra um.

Jólakveðja úr Reykjanesbæ
Stína sæm

Matarboð á aðventu


Hér koma nokkrar myndir af látlausu matarborði á aðventunni,



Einföld hýasintu skreyting í gamalli súputarínu, á miðju borðinu er borðsreytingin, 
heklaðir blúndudúkar, könglar og kertaglös.
einfalt og látlaust eins og mér líkar það best.







Hafið það sem allra best
kveðja
Stina Sæm



Jólainnlit hér heima

December 19, 2013

 Heimilið mitt er nú óðum að komast í jólabúning,
alla aðventuna er ég að skreyta, bæta við og breyta, en jólatréð fór upp á mánudaginn svo nú telst heimilið skreytt og fallegur jólasnjórinn sér svo alfarið um útiskreytingarnar.


Jólakreytingarnar hjá mér eru frekar einfaldar og látlausar, ég held mig við minn  sveitastíl og leifi jólaskreytingunum að falla inní umhverfið að mestu leiti svo ég fái nú ekki leið á þeim, þó stendur jólatréð upp úr eins og upplýst djásn, glitrandi og fallegt.
Áhrifin eru mikið til fengin frá skandinavísku bloggvinkonum mínum, Hvítt og brúnt er mest áberandi en svo er dass af gylltu og rauðu að finna hér og þar, pínu glamúr og hátíðlegt með heimagerða kreppuskrautinu.

Í forstofunni hanga skautarnir og minna á það þegar farið var útá götu að skauta í minni barnæsku, þurftum nú ekki einu sinni tjörn í þá daga.
Gamla þríhjólið sem ég fann í Góða hirðinum virkar bara jóló svona rautt og retro, í glugganum er svo lítið grenitré með samansafni af gömlum og litríkum jólakúlum.



Gamli sjólvarpskápurinn er góður til að hengja jólakort og myndir á og með tímanum verður hann æ litríkari og jólalegri, svo að á skápinn er raðað kertastjökum og öðru í hlutlausum litum svo kortin verða miðpunkturinn og njóta sín vel.

Pappírs frostrósirnar blakta fallega í litla gaflglugganum, (sjá munstur og leiðbeiningar hér)  ég er svo ánægð með að rauða húsið við hliðina gefur glugganum enn jólalegri brag.

Óróarnir, jólastjarnan og glærar ljósaséríur er svo algjörlega ómissandi í stofugluggana.


þetta sæta litla par býr í aðventukransinum á stofuborðinu.

Mér var að berast þessi  fallega  kaffi eða súkkulaðikanna sem ég fúslega tók að mér og er svo innilega velkomin hingað heim.
Gestum er svo að sjálfsögðu boðið upp á kaffi í fallegum bollum og súkkulaði með.


Á jólatrénu, sem er frekar gamalt gerfitré, er samansafn af gersemum sem ég hef safnað mér í gegnum árin, sumt er frá fyrstu jólunum í mínum búskap og annað nýrra.
Litla hvíta kramarhúsið er bara gert úr minnigerðinni af pappírsblúndu og hengt upp með silkiborða.


Í borðstofunni er búið að dekka upp fyrir matarboð, 
látlaust og jólalegt borð á aðventunni. 




Fleyri frostrósir, birkigrein úr Skóginum hans pabba í Skorradalnum og enn fleyri kertastjakar prýða borðstofuna


Sveitaleg jólastemning komin í eldhúsið,


Epla og kanil skreytingin er aftur komin í gamla kökuforminu hennar ömmu og situr á eldhúsborðinu, einfalt og fallegt og svo ókaplega eldhúslegt.

Gömlu íslensku jólasveinarnir setjast að í eldhúsglugganum eins og fyrri árin... sumt bara á sinn stað á heimilinu um hver jól.



Pínulítil jólastemning læðist þarna inná milli í elshúsinu

og svona var nú jólaskreytingin á pallinum fyrr í vikunni
Svo hvítt og fallegt um að lítast síðustu helgi, 
núna vonast ég bara eftir meiri snjó
Epli og könglar í fötu við útidyrnar... 
það þarf nú ekki mikið til að gera jólalegt.




Kvikmyndastjarnan Frosti tekur á móti gestum og þakkar ykkur komuna,
í dag er hann að vísu búin að tína nefinu sínu greyið en með áframhaldandi frosti og snjó, verður hann vonandi enn með okkur um jólin.


Hvernig líst ykkur svo á að skoða borðið betur í næsta pósti?
Þakka ykkur innilega fyrir innlitið
kveðja
Stína Sæm


Auto Post Signature

Auto Post  Signature