Top Social

Nýju nágrannarnir mínir

August 30, 2014
Í byrjun ágúst bar aldeilis til tíðinda hér í hverfinu...
en þá fluttu sonur minn og litla ömmustelpan í húsið beint á móti okkur,
og þegar pabbinn bar litlu stelpuna sína í fyrsta sinn upp tröppurnar sínar, 
 þá tók ég þessa mynd af þeim af tröppunum hjá mér.
og það er ekki langt á milli okkar !


Fallegu nýju nágrannarnir mínir í gamla sjarmerandi húsinu sínu.

Það verður nú ekki langt þar til sú stutta segir bara 
 "amma ég er farin heim"

"bless"

Hér situr hún svo úti á bletti hjá ömmu sinni og nýja heimilið í bakgrunni.

Já það er ekki að furða að bloggið hafi setið á hakanum undanfarið með þennann litla gullmola í næsta húsi og nú er bara að gera nýtt herbergi fyrir litlu dömuna í herbergi undir súð  með fallegum gömlum glugga. 
Spennandi verkefni!

Kær kveðja
amma Stína





1 comment on "Nýju nágrannarnir mínir"
  1. YNDISLEGT!! Er thetta a Vallargotu 10 :) thar atti eg godar stundir fyrir morgum arum :)

    ReplyDelete

vertu velkominn á litla bloggið mitt og endilega skildu eftir skilaboð, það er alltaf gaman að sjá hverjir koma hér inn og heyra hvað ykkur finst.

ps: ef þú ert ekki með account geturðu hakað við anonymous

Auto Post Signature

Auto Post  Signature