Í síðustu viku tók ég mig á og kom smá skipulagi á bloggið á ný,
þá er einfaldara að ákveða hvað ég ætla að gera í dag og jafnvel að eiga fyrirframtilbúna bloggpósta td innlit fyrir næstu viku osfr
En skipulagið heldur áfram með svipuðu sniði og áður:
sætur sunnudagur, mánudagsinnlit, kynning á vöru, stílista eða ljósmyndara á miðvikudögum, Hótel, veitingahús eða álíka á föstudögum, helgar myndasyrpa á laugardögum og svona litlir hversdagspóstar á þriðjudögum þegar vel hittir á ,
fyrst og fremst ætla ég að taka mig á í að koma með pósta hér að heiman sem ég set inná milli og nú þegar eru nokkrir væntanlegir.
fyrst og fremst ætla ég að taka mig á í að koma með pósta hér að heiman sem ég set inná milli og nú þegar eru nokkrir væntanlegir.
og á meðan amma bloggar sefur litla Íris Lind vært í vöggunni sinni við hliðina á mér í eldhúsinu og lætur fátt trufla blundinn sinn
kveðja
Stína Sæm
Hún er yndisleg, litla stelpan þín:)
ReplyDeletehlakka til að sjá fleirri pósta heiman frá þér
knús Sif