Þegar eithvað nýtt bætist inn á heimilið þarf alltaf aðeins að raða og breyta og ég fæ nýja ástæðu til að deila með ykkur litlum krókum og kimum heimilisins sem þið hafið annars séð nokkrum sinnum áður.
Þessi veggur breytist nú ekki mikið, þarna safnast oftast saman gamlir uppáhalds hlutir og aðrir nýrri en í gömlum búning,
litaúrvalið er oftast hvítt, brúnt og einstaka hlutur úr kopar.
litaúrvalið er oftast hvítt, brúnt og einstaka hlutur úr kopar.
Gamalt og nýtt....
eldgömul bók hvílir undir nýlegum kertastjaka, fallegum flauelsborða á trékefli og flunkunýjum gamaldags skærum í snærishnikli.
eldgömul bók hvílir undir nýlegum kertastjaka, fallegum flauelsborða á trékefli og flunkunýjum gamaldags skærum í snærishnikli.
Þetta dásemdar fuglabúr nældi ég í á útsölu hjá Pier í sumar og ég er algjörlega að elska það, passar vel að hafa kerti í því og í augnablikinu eru þar fleyri eldgamlar bækur.
Fermingarmynd af mömmu, brúðarmynd af ömmu og afa og fjölskyldumynd af ömmu eiginmannsins sem lítilli stelpu, eru meðal þess sem prýða hilluna góðu.
Í einum af gömlu römmunum er svo afmæliskort sem ég fékk á eins árs afmælinu mínu
og telst þá væntanlega vera með þessu gamla, eða hvað?
En fallegt er það og svo dásamlegra retro.
Kær kveðja
Stína sæm
En hvað þetta er fallegt hjá þér:) og myndirnar eru líka svo fallegar:)
ReplyDeleteKveðja Sif
Takk innilega fyrir kveðjuna Sif
Deleteknús
Stína
Yndislega fallegt hjá þér nafna, svo mikið af fallegum hlutum og svo smekklega raðað saman :-)
ReplyDeleteknús
Kristín
Takk elsku Kristín
Deletekveðja og knús
Gaman að fá að koma í heimsókn til þín, allt svo bjart og fallegt :)
ReplyDeleteKveðja Kristín og Margrét
ávalt gaman að fá ykkur systur í heimsókn og dyrmætt að sjá hverjir "droppa inn"
DeleteTakk innilega fyrir kveðjuna
knús á ykkur
Stína