Top Social

Showing posts with label bloggparty. Show all posts
Showing posts with label bloggparty. Show all posts

Sumar bloggpartý 2015

June 5, 2015

Muniði sumar-bloggpartýin hér um árið?
Nú ætlum við að halda nýtt sumar-bloggpartý og gera gott betur en síðast.

Hvað er blogg-partý? 

Eins og áður ætlum við að gera sumarlegann bloggpóst 
 og það má vera hvað sem er: sumarstemningin á pallinum, svölunum eða bara úti á bletti,
 sumarleg mataruppskrift eða ofursumarlegt föndur. Bara hvað sem þér dettur í hug og sýnir okkur að þú sért komin í sumargírinn á þínu bloggi.
Svo linkar þú þinn bloggpóst með hér í sumarpartýið og fylgist með því sem hinir setja inn.
og dömur mínar og herrar.....það er kallað blogg-partý.
(mundu bara að setja slóðina á bloggpóstin en ekki bara bloggið þitt) 

Síðast mættu fullt af frábærum bloggurum, með sumarbloggpósta hver örðum líflegri og sumarlegri Hér er smá sýnishorn af því sem við sáum þá:
Sumar bloggpartý 2012 og 2013
fb albúm
Svo ertu tilbúin að mæta í  bloggpartý?

Í þetta sinn er partýið haldið sameiginlega á nokkrum bloggum,
það eru sem sagt fleyri en einn gestgjafi að þessu partýi, svo það ætti aldeilis að verða líf og fjör.
Þetta er þó enn bara sára einfalt fyrir þig.
Þú þarft bara að setja bloggpóstinn þinn hér inn og hann birtist sjálfkrafa á blogginu hjá öllum hinum gestgjöfunum.
Neðst á síðunni er InLinkz hnappur sem þú notar til að setja bloggpóstinn inn og hann er virkur frá því kl 10 á Laugardeginum 6. Júni og út júnímánuð.



Sumar bloggparty.

July 3, 2013
Þá er komið að því!!!
Nú ætlum við að halda annað bloggpartý, þar sem þér og þínu bloggi er boðið að vera með, 
og ég ætla bara að endurtaka leikinn frá því í fyrra og með alveg sama sniði.

og sjáið bara... 
er búin að gera nýtt boðskort ;)




Hvað segið þið?
Eru þið tilbúin í annað bloggparty?



Eins og síðast þá má það vera hvað sem er, hvort sem þú ert með litlar svalir, átt flottustu garðhúsgögnin á fínum palli, notar gamalt dót til að hreiðra um þig, sest með kaffibollann á tröpurnar eða á teppi úti í garði,   .....hvað sem þér dettur í hug.


Bara á meðan þú nýtur þess og vilt deila því með okkur.


Þetta er mjög einfalt,
þú  fylgir leiðbeiningunum hér að neðan og  bláa Link-up hnappin finnurðu neðst á síðuni.

Munið að vera dugleg að láta vita ef þið takið þátt, því þá fá allir í partýinu fleiri heimsóknir á sínar síður,
og allar bloggsíðurnar fara svo á blogglistann á sidebarnum (listinn hér til hægri á síðunni) þar sem síðurnar frá því i fyrra eru að sjálfsögðu. 
(ath virkustu síðurnar eru efst)

Ef þú ert ekki alveg með það á hreinu hvernig þetta virkar sendu mér þá línu á fb síðunni og við finnum út úr því saman.
Hlakka til að sjá þitt innlegg í sumar link-partýið.

Stína Sæm



sumar bloggparty

July 4, 2012


Eru þið tilbúin í annað bloggparty?
Í þetta sinn ætlum við að halda garðparty, með þinni garðaðstöðu..
það má vera hvað sem er, hvort sem þú átt flottustu garðhúsgögnin á fínum palli eða notar gamalt borð og stóla og ferð út með kaffibollann, teppi úti á grasi eða hvað sem þér dettur í hug.
(eins og sumir sem fara með baðkarið út á blett;)
Hvort sem þú er bara með litlar svalir eða ert vön að setjast á  útitröpurnar...
hvað sem er!
Bara á meðan það er sumarlegt og þú nýtur þess.



Svona virkar þetta;
1) Taktu mynd af þinni útiaðstöðu.
2) Gerðu bloggfærlsu, með myndinni þinni eða myndunum. 
3) þú mátt gjarnan setja myndina hér að ofan og link inná bloggpartýið með í bloggfærsluna þína (eða deila þessu á fb hjá þér) 
4) Svo notaru InLinkz hnappinn (með sæta bláa froskinum) hér neðst á síðunni til að setja bloggfærsluna þína hér inn á bloggpartýið.

ath Á meðan blái froskurinn er þarna er enn hægt að vera með og í þetta sinn ætla ég að hafa hann opin til enda júlí svo allir hafi tíma til að vera með.


Ef þú ert ekki alveg með það á hreinu hvernig þetta virkar sendu mér þá línu á fb síðunni og við finnum út úr því saman.
Nýjar bloggsíður fara svo á blogglistann á sidebarnum (listinn hér til hægri á síðunni)
Þið megin endilega láta vita á ykkar síðu eða á fb að þið takið þátt svo enn fleyri viti af 
og verði með. 
og því fleyri sem eru með því fjölbreyttari hugmyndir fáum við fyrir útiaðstöðuna okkar.


Hlakka til að sjá þitt innlegg.
og endilega að hafa samband ef þú lendir í vandræðum
Stína Sæm


föndrað saman

June 8, 2012
Hún Dossa hjá Skreytum hús, kom með frábæra áskorun um daginn fyrir allar pinterest óðar bloggvinkonurnar.

Áskorunin felst í því að: gera einhvern hlut sem þið eruð búnar að pinna til þess að DIY-a í framtíðinni.

Svo brást á þessi líka bongoblíða og ég hef kvorki verið að föndra né verið mjög dugleg hér á blogginu. 
En ákvað að skella einu litlu sætu verkefni hér inn, bara svo ég sé með áður en tíminn rennur út...það eru sko bara  3 klst eftir af tímarammanum þegar ég byrja á þessum pósti.

Mitt innlegg í þessa áskorun er sem sagt lítill og sætur, ofureinfaldur órói í kofann minn.
Falleg fyrirmynd;
 Fyrir nokkru síðan rakst ég á þessa mynd hjá  Huset ved fjorden og þar sem ég átti litla þreytta og frekar lítið smart lampaskerma skellti ég myndinni á pinterest til að eiga til seinni tíma.

Þegar áskorunin fór í gang var ég byrjuð og búin að hengja halfklárað verkefnið upp á "háaloftið" í kofanum....


það bara vantaði fallegann fugl eða fiðrildi til að klára verkið.
En svo rakst ég á súper falleg fiðrildi í vikunni, ætlunin var í upphafi að föndra pappírsfiðrildi, eða finn afugla eins og Dossa var með í afmælispóstinum, en þessi vildu bara svo endilega fá að vera með ;)  

ég skellti mér út í kofa í dag og smellti af einni mynd.. og úps batteríið kláraðist, svo það er engin nærmynd, en ég bæti betri mynd inn seinna.

Edit: 
Búin að hlaða batteríið og bæti við nýjum myndum.
 Svo ætla ég að prufa að vefja batterís seríu í þetta í haust þar sem það er ekkert ljós í kofanum, og   ég á annann skerm sem fær svipaða meðhöndlun en ekki alveg nákvæmlega eins, verða líklega flottir tveir saman.
Hvernig líst ykkur á þetta?

Ég linka  inná  dossag.blogspot.com kíkið inn og sjáið hin DIY verkefnin.


Stína Sæm



blogg vinir

April 26, 2012

Hefur þú gaman af því að blogga og skoða önnur blogg?


Langar þig til að kynna bloggið þitt og jafnvel finna nýjar bloggsíður til að skoða?

Þá langar mig til aðbjóða þér í heimsókn með bloggið þitt.
Við gætum jafnvel haldið lítið bloggparty....


Þar sem við að sjálfsögðu skörtum okkar fallegasta, eins og í alvöru partýi,
veldu uppáhalds myndina á blogginu þínu, eða bara uppáhaldpóstinn 
þinn og deildu því hér að neðan.

Þetta er ofur einfalt, hér neðst á póstinum er lítill blár, sætur froskur, sem þú klikkar á og copy/paste-ar  bloggpóstinum þínum sem þú hefur valið að deila með okkur.


Nú svo er ekkert gaman að partýi sem enginn mætir í svo endilega bjóðið vinum ykkar, með því að láta vita á síðunni ykkar að þið takið þátt.
Allir heimilisbloggarar eru velkomnir hvort sem bloggið er um bakstur, föndur, skreytingar eða bara lífið heima og fjölskylduna. Hvort sem innihaldið sé að mestu ykkar eigin myndir eða hugmyndir af netinu. 



og hér er svo uppáhaldsmyndin mín;

Hún er úr kjallaranum hjá mér. Við tókum allt í gegn þar í byrjun ársins og endurnýttum ýmislegt eins og vörubretti og trékassa og notuðum í bland við dáldið global hluti.  Útkomann er  framandi og spennandi finst mér, enda stíllinn ólíkur því sem er annarstaðar á heimilinu.
Fleyri myndir úr kjallaranum hér


Partýið er opið framm á miðvikudag, svo það er tími til að gera póst með uppáhalds myndinni af blogginu þínu eða bara að velja áður birtann póst og deila með okkur.






Stína Sæm



Auto Post Signature

Auto Post  Signature