Nú kveikjum við á öðru kerti á aðventukransinum,
ég gerði kransinn ekki fyrr en sunnudagskvöldið síðasta svo ég setti ekki inn neinar myndir þegar ég tendraði fyrsta kertið.
Aðventukransinn tók að vísu fremur óvænta stefnu, mig langaði að gera mosa krans skreyttann með blúndum og dúlleríi en átti ekki nog af mosa svo ég dró framm gamla grófa birkikransinn minn og skellti mosanum bara hér og þar eins og greinarnir séu mosavaxnar og þar með var stefnan tekin á gróft og nátturulegt þessi jól.
Svona spretta svo könglar upp út um allt hús.
Varð að smella einni af hundinum í leiðinni, sem fylgdist vel með myndatökunni.
æji Þessi elska verður nú að fá sína athygli líka.
Við kveikjum tveimur kertum á
og komu bíðum hans,
því Drottinn sjálfur soninn þá
mun senda‘ í líking manns.