Top Social

Nýtt ár, ný markmð, nýr bloggpóstur

January 29, 2025
Eins og hjá svo mörgum, er nýtt ár tími sem ég upplifi sem nýtt upphaf,
Timi til að setja mér markmið og búa til nýjar venjur
Eða rifja upp gamlar góða hluti sem ég sakna 
eins og það að nota bloggið aftur.


þegar heilt ár er framundan sem óskrifað blað
er nóg pláss til að byrja nýjar venjur eða taka út gamlar venjur.


 Í ársbyrjun er einhvernvegin mikið auðveldara að ná fókus á....
 það sem mig langar að bæta,
 gera meira af, 
byrja á 
eða það sem mig langar að læra.


Mín markmið eiga að mestu við um handverk og köpun
og að bæta og læra meira um ljósmyndun og vinnslu


fyrir ljósmynda markmiðin,
 gæti verið góð hugmynd að nota bloggpóstinn aftur


Að setja inn einn bloggpóst er dáldið eins og að endurnýja kynninn við gamlann vin og vona að við náum góðu sambandi á árinu


Svo ég skora á sjálfa mig hér með að nota þessa bloggsíðu á nýju ári 
til að segja litlar hversdags sögur í myndum.
 Svo að vonandi straldrið þið 
Með bestu kveðju 



Auto Post Signature

Auto Post  Signature